Beint í efni
Mínar Síður
8. júní 2026

HVAÐA LED LAMPI HENTAR ÞÉR?

Hver og einn lampi frá Kiara Sky hefur sína sérstöðu svo við viljum auðvelda þér að velja þann sem hentar þér og þínum þörfum best. 

HOME LAMPAR

Góður grunnlampi sem tekur ekki mikið pláss. Hann þarf að vera í sambandi á meðan hann er í notkun og ýta þarf á takkann aftan á honum til að kveikja á ljósunum. Ein stilling sem varir í 60 sekúndur. Með lampanum fylgir USB snúra (ekki kló) og hægt er að nota hvaða USB kló sem er. 

FLEX CURE LAMPAR

Handhægir lampar sem eru sérstaklega hannaðir til að nota með gellengingum því þú getur haldið við neglurnar á meðan þær eru í lampanum. Minni lampinn er fínn fyrir byrjendur, enda bara með tveimur perum. Hann þarf að vera í sambandi á meðan notkun stendur en er sjálfvirkur þannig að ekki þarf að ýta á neina takka. Lengra komnir ættu frekar að skoða Rechargable Flex Cure lampann, en hann er þráðlaus og með 14 perum. Hann hentar jafnt fyrir þá sem eru að nota gellengingar og þá sem eru að gera BIAB byggingargel. Báðir lamparnir eru einnig sniðugir til að nota ef verið er að gera skraut á neglurnar og vilt herða eina nögl í einu.

BEYOND PRO LAMPAR

Frábærir lampar jafnt fyrir fagfólk og þær sem eru bara gera sínar eigin neglur heima. Lamparnir eru þráðlausir og hleðslan dugar vel. Mikill fjöldi LED pera (VOL II: 24 og VOL III: 30), hver í sínu speglahólfi og með spegilbotni til að hámarka endurkast ljóssins. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að það sullist gellakk á lampann þinn því hann er asetónþolinn og þú getur einfaldlega strokið af honum. Helsti munurinn á milli þeirra er fjöldi pera og svo er VOL III með svokallaðri Flash Cure Stillingu (í stað 90 sek low heat í VOL II) þar sem ljósin blikka með stöðugu millibili og hentar sérstaklega vel fyrir BIAB gel og hörð gel. 

Skoðaðu úrvalið af lömpum hér: LED LAMPAR.