UM OKKUR

Kiara Sky er litríkt og framsækið bandarískt vörumerki sem hefur það að markmiði að gera fallegar og vandaðar neglur aðgengilegar fyrir alla. Vörumerkið var stofnað af tveimur reynslumiklum naglafræðingum og nefnt eftir frumburði þeirra, Kiara Sky. Frá upphafi hefur áherslan verið lögð á fagleg gæði, nýsköpun og vörur sem hvetja fólk til að tjá sinn eigin persónulega stíl.
Úrval Kiara Sky spannar allt sem þarf til að skapa fallegar neglur - allt frá gellökkum, Press-ON nöglum yfir í Gel Extensions lengingar, akrýl, naglaskraut, lampa og önnur áhöld. Vörurnar henta jafnt naglafræðingum og þeim sem vilja gera neglurnar sínar heima.
Kiara Sky er þekkt fyrir spennandi litaúrval, fallega hönnun og góðar vörur. Vörumerkið leggur áherslu á að sameina faglegan árangur og notendavænar lausnir, hvort sem þú vilt klassískt og fágað útlit eða litríkari og djarfari neglur. Nú er leið til að vera skapandi, prófa eitthvað nýtt og sýna hver þú ert.
Finndu þína liti, skapaðu þinn eigin stíl og láttu neglurnar njóta sín með Kiara Sky.
U