Beint í efni
Mínar Síður
8. júní 2026

HVER ER MUNURINN Á TINTED OG GEL BUILDER?

Vinsældir gellakka hafa aukist rosalega á undanförnum árum og sífellt fleiri vilja geta gert gelneglur á sig heima. En hvað ef þú vilt líka styrkja eða lengja neglurnar? 

Til þess að gera gelneglur heima þarftu fyrst og fremst að eiga LED-lampa. Helstu nauðsynjavörurnar eru síðan grunnur (base coat)litur og glans (top coat). Margar vilja samt líka einhvers konar styrkingu sem gerir neglurnar þykkari, harðari og dregur úr því að þær brotni. 

Tvær af nýlegum vörulínum Kiara Sky eru einmitt styrkingar- og byggingargel: Tinted Rubber Top Coat og Gel Builder. Það getur verið erfitt að átta sig á muninum á milli þessara vara, þær eiga margt sameiginlegt en eru einnig mjög ólíkar. Í þessari færslu förum við í gegnum hverja vöru fyrir sig og hjálpum þér að átta þig á hvaða vara hentar þér.

Tinted Rubber Top Coat — Litur, styrkur og glans í einni vöru 

Tinted eru ný spennandi formúla sem sameinar styrk, léttan og hlutlausan lit og glansandi áferð - allt með aðeins einni burstastroku. 

Formúlan er með miðlungs seigju sem það þýðir að þú þarft ekki að hafa hraðar hendur við ásetninguna og það er minni hætta að hún flæði út í naglaböndin. Hún er einnig sjálfjafnandi sem tryggir jafna, slétta áferð. 

Hægt er að nota Tinted á tvo mismunandi vegu:
Hverjum hentar Tinted?

Tinted eru fullkomin vara fyrir þá sem vilja spara tíma, því hún er styrking, litur og glans í einni og sömu vöru! En Tinted er líka sérstaklega hentugt fyrir:

Tinted lökkin eru fáanleg í 8 litbrigðum sem henta flestum húðlitum:

Gel Builder — Fyrir þær sem vilja styrkja, móta og lengja

Gel Builder eru sérstaklega hönnuð til að byggja upp, styrkja og móta neglurnar. Þetta eru árangursrík byggingargel sem eru HEMA-frí, það er án hydroxyethyl methacrylate sem er þekkt fyrir að geta valdið ofnæmisviðbrögðum. Þær eru því sérstaklega hentugar fyrir einstaklinga með viðkvæmar neglur eða húð.

Byggingargel eru gefa náttúrulegum nöglum góða styrkingu en einnig er hægt að nota þau með tipsum, til dæmis Natural Gel Extensions, til að fá aukna lengd. Formúlan er afar sjálfjafnandi sem tryggir jafna, slétta áferð. Við ásetningu þarf að passa að gelið flæði ekki út í naglaböndin og gott er að hafa mjóan bursta við höndina til að draga gelið varlega í átt að þeim. Með Gel Builder þarf alltaf að nota glans (top coat) yfir og mörgum finnst líka gott að nota grunn, eins og Rubber Base Coat, undir til að fá slétta áferð á neglurnar áður en hafist er handa. 

Annar góður eiginleiki Gel Builder að það má nota það til lagfæringa og fylla inn við naglabönd í stað þess að pússa allt af. 

Hverjum hentar Gel Builder?
Gel Builder byggingargelin eru fáanleg í 8 litbrigðum sem henta flestum húðlitum:

Hvort á ég að velja?

Veldu Tinted Rubber Top Coat ef:
Veldu Gel Builder ef:

Sama hvort þú velur þá ertu í góðum málum. Báðar vörulínurnar eru hannaðar með venjulega einstaklinga í huga til að auðvelda þeim að gera fallegar neglur á sig heima. Þú þarft bara LED-lampa og smá þolinmæði!

Skoðaðu alla möguleikana og finndu það sem hentar þér best: